Ræktunarsamand Flóa og Skeiða er eitt öflugasta fyrirtækið á landinu á sviði jarðborana.
Fyrirtækið er með sjö jarðbora í rekstri sem geta tekist á við fjölbreytileg verkefni og býr fyrirtækið því yfir víðtækri sérþekkingu á þessu sviði.
Upphaflega stofnað sem samvinnufélag.

Fyrirtækið var upphaflega sett á legg sem samvinnufélag þann 22. janúar árið 1946 og telst því í dag vera eitt elsta verktakafyrirtæki á landinu. Að stofnuninni komu bændur í fimm hreppum á því svæði sem í dag telst til Flóa og Skeiða, en hér var nánar tiltekið um að ræða einskonar samruna búnaðar-félaga sveitanna undir merki eins ræktunarsambands.

  • Gaulverjabæjarhreppur
  • Hraungerðishreppur
  • Sandvíkurhreppur
  • Skeiðahreppur
  • Villingaholtshreppur
  • Síðar meir bættust Eyrabakka- og Stokkseyrarhreppur við.

Af þessu má ætla að samvinnuhugsjónin hafi verið helsti drifkraftur sambandsins frá upphafi. 

Félagið var síðast einn öflugasti jarðvinnuverktaki á heimasvæði sínu og byggði upp öfluga bordeild.  Verkefnin sem félagið hefur komið að eru fjölmörg og stór. 

Árin 2008-2014 voru félaginu þung en í kjölfar efnahagshruns á landinu breyttist staðan á einni nóttu.   Á árinu 2014 lauk alsherjar endurskipulagning á rekstrinum.  Jarðvinnudeildin var seld frá og starfar nú undir merkjum Borgarverks.  Áhersla Ræktunarsambandsins verður héðan í frá jarðboranir og sér félagið nú fram á bjarta tíma eftir umbreytingarsöm ár.  Jarðboranir keyptu allt hlutafé í Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða fyrripart ársins 2015 en þar sameinast miklir kraftar og þekking á þessu sérsviði.

Aðal starfsstöð félagsins er og verður á Selfossi. 

Árið 2007 var gerð kvikmynd um sögu félagsins og er hún aðgengileg hér á síðunni enda merkileg heimild um einstaka sögu.

Heimildamynd um sögu Ræktunarsambands Flóa & Skeiða