FINNA

Ræktunarsamband Flóa og Skeiða er í dag eitt reyndasta og stærsta fyrirtæki í almennri verktakastarfsemi hér á landi.

Meginhlutverk þess að sinna jarðvinnu af ýmsum toga og nægir þar að nefna vatnsboranir, vegagerð, þungaflutninga og lagningu varnargarða. Meira


Mainimg
Samið við JÁVERK um byggingu Hellisheiðarvikjunar, 5. áfanga.

OR hefur samið við JÁVERK um byggingu 5. áfanga Hellisheiðarvirkjunar. Um er að ræða jarðvinnu og byggingu stöðvarhúss fyrir 2 túrbínur ásamt byggingu gufulokahúss og undirstaða undir kæliturna. Heildarupphæð samnings er um 2,4 milljarðar ísl. króna. Ræktunarsambandið er undirverktaki við framkvæmdina og sér um alla jarðvinnu og lagnir utan stöðvarbyggingar. Magn uppgraftrar er um 330.000 m³ og fyllingar eru um 250.000 m³. Heildarlengd lagna er um 11.000 m.


Meira
Benedikt, nýr bor hjá Ræktunarsambandinu
Vorið 2008 tók Ræktunarsambandið í notkun nýjan jarðbor af gerðinni Fraste FS 300. Borinn er byggður á 480 hestafla MAN 6x6 með "om bord" loftpressu og mud dælu. Borinn hefur 16 tonna pull-back lyftigetu og 1800 daNm snúningsvægi. Þessi bor notar 6 m langar borstangir og hentar hann vel til borunar á holum allt að 1.200 m djúpum.
Meira
INGÓLFUR RIG SCHRAMM T 135 XD

VIDEO


Meira
NASI RIG SCHRAMM T 130 XD

VIDEO


Meira
Ingólfur, stærsti jarðbor Ræktunarsambandsins
Borinn Ingólfur er af gerðinni SCHRAMM T-135-XD og er stærsti bor Ræktunarsambands Flóa og Skeiða. Hann er sérstaklega gerður til þess að bora eftir olíu og gasi sem kemur sér einnig vel þar sem borað er eftir gufu. Hægt er að koma fyrir margs konar öryggis- og þéttilokum á yfirborði án þess að gera þurfi sérstakan borkjallara fyrir þann búnað. Borinn getur borað niður á allt að 2.500m dýpi, toggeta er ca 105 tonn og aflvél 770 hö.
Meira
NASI nýr jarðbor Ræktunarsambandsins
Borinn NASI kom til landsins vorið 2007.   NASI er af gerðinni Schramm T-130-XD árg. 2007 og er næst stærsti bor Ræktunarsambandsins og einnig fjölhæfasti bor félagsins. NASI getur borað á ská og er jafnframt búinn sérstökum tvöföldum snúningsmótor sem gerir að það verkum að hægt er að nota við hann tvöfaldan streng til R/C borunar (reverse circulation). Borinn getur borað niður á allt að 2.000m dýpi, toggeta er ca 65 tonn og aflvél 770 hö.
Meira
RISABOR

Risabor fyrir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða var hífður upp úr Reykjafoss í gær.
Þetta er mjög öflugur bor sem mun vera notaður í verkefni fyrir Selfossveitur við Ósabotna við Laugardæli til að bora eftir heitu vatni og síðan í framhaldi af því í önnur verkefni.
Borinn var strax fluttur austur og gekk vel.

Framleiðandi borsins er Schramm sem er 108 ára gamalt fyrirtæki í borframleiðslu og er staðsett í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum.

Með bornum kom einnig RC búnaður til að forbora fyrir háhitaholur og vegur þessi búnaður samtals um 62 tonn og er 353 m3.


Meira
Teikningar af verðlaunahúsum í Hagalandi

Sala á lóðum í Hagalandi hefur verið góð, en það eru Lögmenn Suðurlandi sem sjá um söluna. Nú er hægt að skoða á netinu verðlaunateikningar af húsunum. Farið hér inn á heimasíðu Lögmanna: www.log.is/hagaland og veljið þar uppdrátt af lóðum.  Með því að renna bendlinum yfir teikningu af skipulagi má skoða ákveðnar lóðir og fá upplýsingar um götuheiti, afstöðumynd, grunnteikningu af húsi og útlitsteikningu.  


Meira
Verðlaunahús og lóðir - Myndbönd í þrívídd
Í Hagalandinu eru til sölu glæsilegar eignarlóðir í vel staðsettu íbúðarhverfi á Selfossi. Lóðirnar seljast með eða án verðlaunateikninga frá teiknistofunni arkitektur.is. Í næsta nágrenni er gert ráð fyrir að muni rísa leikskóli og grunnskóli.
Meira
LÓÐASALA HAFIN
Gatnagerð er nú komin vel á veg í Hagalandi og lóðasala er nú einnig hafin á áföngum E - F og D. Nokkrar lóðir er þegar seldar í fyrsta áfanga og búið er að taka frá lóðir undir einbýlis og parhús fyrir verktaka.
Meira
Hönnunarsamkeppni lokið.
Hönnunarsamkeppni lokið. Samkeppni arkitekta um hönnun húsagarða í Hagalandi á Selfossi er nú lokið. Eins og kom fram í keppnislýsingu var meginmarkmið keppninnar að ná fram heildstæðri, aðlaðandi byggð með skýrt svipmót og vel leystar byggingar m.t.t. innra fyrirkomulags, útlits og efnisvals.
Meira
60 ára afmæli
Í tilefni af 60 ára afmæli Ræktunarsambandsins var boðið til afmælisfagnaðar í Hótel Selfoss föstudaginn 28. apríl sl. Margt var um manninn, enda hátt í 400 manns sem komu til að samgleðjast þessum mikla áfanga. Boðið var upp á veglegar veitingar, bæði í mat og drykk.
Meira
Hönnunarsamkeppni
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til hönnunarsamkeppni um íbúðabyggingar á Selfossi. Samkeppnin nær til hönnunar íbúða í fjölbýlis-, rað-, par- og einbýlsihúsum á ca. 10 ha deiliskipulagt svæði innan Selfoss. Vegleg verðlaun eru í boði og er skilafrestur til 25. apríl 2006.
Meira
Bordeild Ræktunarsambands Flóa og Skeiða 20 ára
Þessi grein er skrifuð í tilefni þess, að 20 ár eru liðin, síðan Ræktunarsamband Flóa og Skeiða á Selfossi haslaði sér völl í jarðborunum hér á landi.
Meira
IMG Gallupkönnun: Um 94% telja Ræktunarsambandið traust fyrirtæki
Tæplega 94% telja Ræktunarsamband Flóa og Skeiða traust fyrirtæki samkvæmt nýrri IMG Gallupkönnun. Markmið könnunarinnar var að kanna ímynd fyrirtækisins meðal íbúa Árborgar og nágrennis. Um var að ræða 1000 manna úrtak á þessu svæði og var svarhlutfall 66,4%.
Meira
Umhverfismál - vistvænn akstur - eldsneytisnotkun
Í framhaldi af vel heppnuðu námskeiði í vistvænum akstri og auknum áhuga starfsmanna og stjórnenda á umhverfismálum hefur verið ákveðið að gera kerfisbundna könnun á eldsneytisnotkun nokkurra tækja hjá Ræktunarsambandinu. Tilgangurinn með könnuninni er að sjá hvort merkjanlegur munur er á milli mismunandi tegunda véla sem eru að vinna sambærilega vinnu.
Meira
Framkvæmdum við Þorlákshafnarhöfn senn að ljúka.
Framkvæmdum við Þorlákshafnarhöfn fer nú senn að ljúka. Verkið, sem er glæsilegt, hefur tekið heldur lengri tíma en ætlað var í upphafi vegna viðbótarverkefna.
Meira
Gámaþjónustan semur við Ræktunarsambandið
Gámaþjónustan HF hefur samið við Ræktunasambandið um jarðvinnuframkvæmdir vegna stækkunar lóðar við Berghellu 1 í Hafnarfirði. Um er að ræða stækkun plana með jöfnun og sprengingu hrauns ásamt fyllingum, lagnavinnu og malbikun. Framkvæmdir munu hefjast fljótlega eftir páska.
Meira
Sultartangalína 3
Ræktunasambandið hefur nú hafið framkvæmdir að nýju eftir vetrarahlé við Sultartangalínu 3, 3. áfanga. Um er að ræða gerð slóða og plana við rafmöstursundirstöður ásamt niðursetningu stagfestinga. Verkið er unnið fyrir Landsvirkjun.
Meira
Námskeið í vistakstri
Yfir 60 starfsmenn Ræktunarsambands Flóa og Skeiða hafa nýlokið námskeiði í vistakstri. Námskeiðið fólst í því að þáttakendur voru látnir aka bifreið ákveðna vegalengd þar sem mældur var tími,hraði og eyðsla bifreiðar.
Meira
Árborg semur við RSFS um Suðurbyggð B
Sveitarfélagið Árborg hefur samið við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um verkð Suðurbyggð B á Selfossi. Verkið felst í gatna- og lagnagerð ásamt yfirborðsfrágangi í nýrri íbúðarbyggð sem telur alls 99 íbúðir. Framkvæmdir við verkið eru núþegar hafnar en því á að vera lokið að fullu 1. júlí 2006.
Meira
Glæsileg ný heimasíða komin í loftið
Loksins er nýja heimasíðan komið í loftið. Markmiðið með nýju heimasíðunni er að gera hana gagnvirkari fyrir bæði starfsmenn og viðskiptivini, þar sem nú er hægt að sækja um vinnu á heimasíðunni ásamt því að hægt að skoða flotann í heild sinni.
Meira
Þorlákshöfn Austurgarður - Hafnargerð
19. ágúst voru opnuð tilboð í verkið Þorlákshöfn - Austurgarður. Ræktunarsambandið var lægst af bjóðendum og hafa náðst samningar um verkið. Verkið felst í gerð 800m langs sjóvarnargarðs, alls um 230 þús. m³ þar af 115 þús m³ af flokkuðu grjóti.
Meira


Ræktunarsamband Flóa & Skeiða ehf | Gagnheiði 35 | 800 Selfossi | Sími 480-8500 - Fax:482-2425 | raekto@raekto.is
Verkstæði sími: 480-8508 | Fax : 480-8509