
Ræktunarsamband Flóa og Skeiða er í dag eitt reyndasta og stærsta fyrirtæki í almennri verktakastarfsemi hér á landi. Meginhlutverk þess að sinna jarðvinnu af ýmsum toga og nægir þar að nefna vatnsboranir, vegagerð, þungaflutninga og lagningu varnargarða.
Samvinnufélag
Fyrirtækið var opinberlega sett á legg sem samvinnufélag þann 22. Janúar árið 1946 og telst því í dag vera eitt elsta verktakafyrirtæki á landinu. Að stofnuninni komu bændur í fimm hreppum á því svæði sem í dag telst til Flóa og Skeiða, en hér var nánar tiltekið um að ræða einskonar samruna búnaðarfélaga sveitanna undir merki eins ræktunarsambands. Hlutaðeigandi hreppar voru:
Af þessu má ætla að samvinnuhugsjónin hafi verið helsti drifkraftur sambandsins frá upphafi.